← Aftur í leikinnHVAÐ KOSTAR ÞETTA?

Persónuvernd

Þú spilar án aðgangs. Við biðjum ekki um nafn eða netfang og notum hvorki auglýsingar né greiningarkökur.

Það sem er vistað

Nauðsynleg vafrakaka finnur spilarann þinn. Á þjóninum eru geymd hakkgildi auðkenna, framvinda, ágiskanir og stig. Kakan er ekki aðgengileg JavaScript. Leikgögn eru fjarlægð eftir 90 daga við næstu reglubundnu hreinsun þegar þjónustan er í gangi.

Áskoranir með vinum

Áskoranatengill inniheldur tilviljanakennt auðkenni. Hann gefur aðgang að sömu tíu vörunum, sömu röð og sama frysta verði. Hann sýnir ekki ágiskanir þínar, stig eða framvindu. Vörulistinn getur haldist aðgengilegur eftir að þínum ágiskunum hefur verið eytt.

Hýsing og netumferð

Leikurinn er hýstur á eigin þjóni og leikgögn eru vistuð þar. Cloudflare sér um örugga nettengingu við þjóninn. Þjónustan getur unnið með IP-tölur og tæknilegar upplýsingar við afhendingu og öryggisvöktun. Leikurinn notar tímabundið hakkgildi IP-tölu til að takmarka misnotkun; það er fjarlægt innan sólarhrings frá lokum gildistíma. Engar persónuupplýsingar eru sendar til Krónunnar við ágiskun.

Vörumyndir í sýniútgáfunni eru afritaðar með vörugögnunum. Ef kveikt er á tengingu við lifandi vörugögn kunna myndir að berast frá myndþjóni Krónunnar. Þegar þú opnar vörutengil ferðu á vef Krónunnar.

Gögnin þín

Þessar aðgerðir eiga aðeins við um spilarann í þessum vafra.

Eyðing vafrakökunnar fjarlægir aðgang þinn að eldri framvindu en eyðir henni ekki sjálfkrafa af þjóninum. Notaðu eyðingarhnappinn áður en þú hreinsar kökur.

Aðstoð og upplýsingar →